Hann er búinn að vera ansi fallegur, dagurinn í Utrecht í Hollandi.
Það er búið að vera mikið blíðskaparveður og fallegt um að litast í þessari huggulegu borg.
Það er búið að vera mikið blíðskaparveður og fallegt um að litast í þessari huggulegu borg.
Lestu um leikinn: Holland 1 - 0 Ísland
Íslenska kvennalandsliðið getur skrifað söguna í þessari skemmtilegu borg í kvöld er þær mæta Hollandi. Með jafntefli eða sigri tryggir íslenska liðið sig inn á heimsmeistaramótið í fyrsta sinn.
Það er búið að vera allt að 30 gráðu hiti í dag en hitastigið lækkar eftir því sem líður á kvöldið. Þegar leikur hefst - klukkan 20:45 að staðartíma - þá verður búið að draga fyrir sólu og hitastigið í kringum 20 gráðurnar.
Því er spáð að það muni rigna aðeins á meðan leik stendur og gæti það gert leikinn enn áhugaverðari.
Athugasemdir