06.11.11 - 23:53
Elvar Geir Magnússon
Guðjón Þórðarson tekinn við Grindavík (Staðfest)

Guðjón samdi til þriggja ára við Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Þórðarson hefur skrifað undir samning við Grindavík. Hann gerir þriggja ára samning við félagið en það var staðfest í yfirlýsingu sem knattspyrnudeild Grindavíkur var að senda frá sér.
Tekur hann við liðinu af Ólafi Erni Bjarnasyni sem ákvað eftir sumarið að einbeita sér að leikmannaferli sínum og geyma þjálfarahlutverkið.
Guðjón var látinn fara sem þjálfari BÍ/Bolungarvíkur eftir eitt ár við stjórnvölinn en liðið endaði í sjötta sæti 1. deildar.
Mikið hefur gustað í Grindavík eftir að stjórn félagsins tók þá ákvörðun að fara í viðræður við Guðjón um að taka við liðinu. Endaði það með formannsskiptum þar sem Þorsteinn Gunnarsson steig af stóli og Jónas Þórhallsson tók við.
Jónas bindur miklar vonir við ráðningu Guðjóns og sagði í samtali við Stöð 2 í síðasta mánuði að stefnan væri sett á Íslandsmeistaratitil undir hans stjórn strax á næsta ári.