Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. nóvember 2019 23:00
Aksentije Milisic
Son: Mér þykir þetta mjög leitt
Son fagnar marki í kvöld.
Son fagnar marki í kvöld.
Mynd: Getty Images
Heung-Min Son, leikmaður Tottenham, tjáði sig um meiðsli Andre Gomes eftir leik Red Star og Tottenham í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Tottenham sigraði Red Star 4-0 í Serbíu í kvöld þar sem Son skoraði tvö af mörkum Spurs. Fyrra marki sínu fagnaði hann með því að senda Gomes afsökunarbeiðni.

„Það var mjög mikilvægt að vinna þennan leik, sérstaklega gegn liði sem hafði ekki tapað á heimavelli. Hugarfar okkar var gott og við skoruðum mörk í fyrri hálfleik. Þetta er erfiður völlur heim að sækja en við vitum að við getum spilað vel á útivöllum," sagði Son áður en hann tjáði sig um atvikið á Goodison Park.

„Síðustu dagar hafa verið hrikalega erfiðir en á sama tíma hef ég áttað mig betur á því hversu heppinn ég er með liðsfélaga og stuðningsmenn. Allir hafa sýnt mér mikinn stuðning. Það sem ég get sagt er að mér þykir þetta mjög leitt. Í kvöld þurfti ég að einblína á leikinn fyrir liðið og þetta var góð frammistaða fyrir alla þá sem hafa stutt mig síðustu daga."

Tottenham er í öðru sæti í B-riðli Meistaradeildarinnar, fimm stigum á eftir Bayern Munchen og fjórum á undan Red Star.
Athugasemdir
banner
banner
banner