Eggert Aron Guðmundsson var á reynslu hjá danska félaginu FC Kaupmannahöfn í nóvember. Eggert er leikmaður Stjörnunnar og fór þessi sautján ára leikmaður með U19 ára liði FCK á æfingamót á Marbella nú í desember.
Eggert hefur spilað með liðinu á mótinu og skoraði í úrslitaleiknum í dag gegn Molde.
Eggert hefur spilað með liðinu á mótinu og skoraði í úrslitaleiknum í dag gegn Molde.
Hann er sautján ára gamall og spilaði sem sóknarsinnaður miðjumaður hjá Stjörnunni í sumar. Í leikjum hjá FCK hefur hann t.d. spilað sem hægri bakvörður.
Orri Steinn Óskarsson er leikmaður FCK og hefur einnig spilað með U19 ára liði félagsins í þessu móti.
Sjá einnig:
Hin hliðin - Eggert Aron
Molde vann úrslitaleikinn við FCK í vítaspyrnukeppni en leikurinn endaði 2-2.
Eggert Aron Gudmundsson (2004) scored for FCK U19’s when they played vs. Molde U19’s in the Final. The match ended 2-2 🇮🇸⚽️⭐️👌 pic.twitter.com/VmHShHSuKL
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) December 6, 2021
U19 førte to gange over Molde i finalen i Marbella på mål af Eggert Gudmundsson og Thomas Jørgensen, men efter 2-2 i ordinær tid, vandt nordmændene efter straffesparks-konkurrence #fcklive pic.twitter.com/OobvnLB13n
— F.C. København (@FCKobenhavn) December 6, 2021
Athugasemdir