Fotbolti.net
07.05.10 - 17:02
Magnús Már Einarsson

Guðfinnur Þórir Ómarsson í Þrótt (Staðfest)

Guðfinnur Þórir Ómarsson í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið kant og sóknarmanninn Guðfinn Þóri Ómarsson til liðs við sig frá ÍR.
Guðfinnur er uppalinn Þróttari en þessi 27 ára gamli leikmaður hefur leikið með ÍR frá því árið 2006.

Guðfinnur hefur verið meðal bestu leikmanna ÍR undanfarin ár en hann var meðal annars í liði ársins í annarri deildinni árið 2006 og árið 2008.

Í fyrra skoraði Guðfinnur fjögur mörk í tuttugu leikjum í fyrstu deildinni með ÍR en hann skoraði sex mörk þegar að liðið sigraði aðra deildina árið 2008.

Guðfinnur er kominn með leikheimild með Þrótti og getur því leikið með liðinu gegn KA í fyrstu umferðinni í fyrstu deild á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.