07.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Miguel Mista til Toronto (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Toronto FC í Kanada hefur fengið spænska framherjann Miguel Mista frá Deportivo La Coruna.
Mista getur byrjað að leika með Toronto í MLS deildinni þegar félagaskiptaglugginn opnar þann 15.júlí.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur leikið allan sinn feril á Spáni með Real Madrid, Tenerife, Valencia, Atletico Madrid og nú síðast Deportivo La Coruna.
Mista gekk best þegar hann var hjá Valencia frá 2001-2006 en þar skoraði hann 40 mörk í 142 leikjum.
Hann skoraði meðal annars í 2-0 sigri á Marseille í úrslitaleiknum í Evrópukeppni félagsliða árið 2004 auk þess sem hann varð tvívegis spænskur meistari með Valencia.

Heimild: Goal