07.07.10 - 10:20
Magnús Már Einarsson
Paulo Sousa tekinn við Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn portúgalski Paulo Sousa hefur tekið við sem knattspyrnustjóri hjá Leicester City.
Sousa, sem er 39 ára, verður kynntur formlega til sögunnar hjá Leicester á fréttamannafundi síðar í dag.
Sousa hætti sem stjóri Swansea á mánudag en hann stýrði áður QPR í fimm mánuði.
Hjá Leicester tekur Sousa við starfinu af Nigel Pearson sem fór til Hull City á dögunum.
Leicester komst í umspil um sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en liðið tapaði þar gegn Cardiff í vítaspyrnukeppni.

Heimild: Sky