07.07.10 - 16:59
Alexander Freyr Tamimi
Laurent Koscielny í Arsenal (Staðfest)

Arsenal hefur fengið liðsstyrk.

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur fengið liðsstyrk.

Mynd: Getty Images
Arséne Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur gert sín fyrstu kaup í sumar en leikmaðurinn sem hann klófesti heitir Laurent Koscielny og er miðvörður sem kemur frá franska úrvalsdeildarliðinu Lorient.
Kaupverðið á þessum pólska varnarmanni er talið nema 10 milljónum punda en ferill hans hefur verið á uppleið á ljóshraða undanfarin ár. Hann lék í Tours í 3. deild Frakklands fyrir ekki all löngu síðan og var síðan valinn besti leikmaður næst efstu deildar Frakklands af öðrum leikmönnum.
Þaðan hélt hann til Lorient þar sem hann átti frábært tímabil og vakti hann áhuga Wenger.
„Koscielny er miðvörður með mikla hæfileika sem hefur staðið sig gríðarlega vel á afstöðnu tímabili með Lorient,\" sagði Wenger.
„Við lítum á hann sem mjög sterkan leikmann sem hefur tekið miklum framförum á miklum hraða. Hann hefur sýnt að hann er andlega sterkur, hann er baráttumaður og mjög mikill keppnismaður. Koscielny er frábær viðbót við lið okkar.\"
Forvitnilegt verður að sjá hvernig Koscielny mun spjara sig í ensku úrvalsdeildinni en hann er ekki fyrsti óþekkti miðvörðurinn sem Arsenal fær til sín. Fáir vissu mikið um Thomas Vermalaen þegar hann gekk til liðs við Arsenal í fyrra en hann stóð sig frábærlega og munu stuðningsmenn vonast til að sagan endurtaki sig með hinn pólska Koscielny, sem fæddist að vísu í Frakklandi.

Heimild: Vefur Arsenal