07.08.09 - 13:05
Magnús Már Einarsson
Antti Niemi til Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur samið við finnska markvörðinn Antti Niemi en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.
Þessi 37 ára gamli leikmaður lék á sínum tíma yfir 100 leiki með Southampton áður en hann yfirgaf félagið árið 2006.
Á síðustu leiktíð var hann á mála hjá Fulham en lagði síðan hanskana á hilluna vegna meiðsla.
Niemi hefur hins vegar ákveðið að byrja aftur í boltanum og hann verður væntanlega varamarkvörður fyrir David James á koamndi tímabili.
Portsmouth hefur einnig markverðina Asmir Begovic og Jamie Ashdown í sínum röðum en ekki er ólíklegt að sá fyrrnefndi fari á láni.

Heimild: BBC