Fotbolti.net
07.08.09 - 16:00
Magnús Már Einarsson

Klaas-Jan Huntelaar til AC Milan (Staðfest)

Klaas-Jan Huntelaar til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

AC Milan hefur gengið frá kaupunum á Klaas-Jan Huntelaar en hann kemur til félagsins frá Real Madrid fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 25 ára gamli Hollendingur stóðst læknisskoðun í dag og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samnign við AC Milan.

Huntelaar kom til Real Madrid frá Ajax í janúar en honum gekk illa að festa sig í sessi á Spáni.

Eftir komu Kaka, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema var ljóst að Huntelaar væri á förum og hann hefur verið orðaður við nokkur félög að undanförnu.

Stuttgart reyndi meðal annars að krækja í Huntelaar en að lokum var það AC Milan sem krækti í kappann.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.