Fotbolti.net
07.08.09 - 21:13
Magnús Már Einarsson

Alberto Aquilani til Liverpool (Staðfest)

Frá keppni í 4-8 vikur

Alberto Aquilani til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á Alberto Aquilani miðjumanni Roma.
Aquilani er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fimm ára samning við Liverpool en talið er að hann kosti félagið um tuttugu milljónir punda.

Aquialni hefur verið frá keppni frá því í mars vegna ökklameiðsla en hann ætti að verða klár í slaginn að nýju eftir fjórar til átta vikur.

Hjá Liverpool mun hann fá það hlutverk að leysa Xabi Alonso af hólmi en hann gekk í raðir Real Madrid á 30 milljónir punda fyrr í vikunni.

Aquilani er annar leikmaðurinn sem kemur til Liverpool fyrir háa upphæð í sumar en félagið hafði áður keypt hægri bakvörðinn Glen Johnson frá Portsmouth.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.