07.11.11 - 14:07
Elvar Geir Magnússon
Magnús Páll Gunnarsson á leið í Hauka (Staðfest)

Magnús Páll í leik með Víkingi í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Magnús Páll í leik með Víkingi í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Sóknarmaðurinn Magnús Páll Gunnarsson hefur fengið sig lausan frá Víkingi og er að ganga í raðir Hauka. Hann mun undirrita samning þess efnis síðar í vikunni.
Magnús er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Hauka síðan að Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson tóku við stjórnartaumunum hjá Hafnarfjarðarliðinu.
Magnús er 31 árs og gekk til liðs við Víkinga um mitt sumarið. Hann skoraði eitt mark í tíu leikjum í Pepsi-deildinni.
Hann sló í gegn með Breiðabliki sumarið 2007 en þá skoraði hann átta mörk og hirti bronsskóinn. Í janúar 2009 samdi Magnús Páll við Wuppertaler en meiðsli settu strik í reikninginn þar og í kjölfarið fór hann til Hammer SVPG. Á síðasta vetri spilaði Magnús síðan með SV Holzwickede þar sem hann skoraði 23 mörk í jafnmörgum leikjum.