Fotbolti.net
07.11.11 - 20:38
Magnús Már Einarsson

Magnús Þórir í Fylki (Staðfest)

Magnús Þórir í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson

Magnús Þórir Matthíasson, leikmaður Keflvíkinga, er genginn til liðs við Fylki en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Magnús Þórir skrifaði undir tveggja ára samning við Fylkismenn í dag en samningur hans við Keflavík rann út í síðasta mánuði.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Fylkir fær síðan Ásmundur Arnarsson tók við liðinu í haust en Björgólfur Takefusa og Árni Freyr Guðnason eru einnig komnir í Árbæinn.

Magnús Þórir, sem er 21 árs gamall, getur leikið bæði sem framherji og kantmaður.

Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Keflvíkingum árið 2007 og undanfarin tvö ár hefur hann komið mikið við sögu.

Magnús skoraði fimm mörk í tuttugu deildar og bikarleikjum í sumar en samtals hefur hann skorað tíu mörk í 58 deildar og bikarleikjum með Keflavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.