Fotbolti.net
07.11.11 - 21:34
Hafliði Breiðfjörð

Björk Gunnarsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Björk ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs í Breiðablik.

Björk ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs í Breiðablik.

Canon

Mynd: Breiðablik

Kvennaboltinn
Breiðablik sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem það er tilkynnt að framherjinn Björk Gunnarsdóttir sé gengin til liðs við félagið frá bikarmeisturum Vals.
Björk lék með Val undanfarnar tvær leiktíðir en þar spilaði hún 35 deildarleiki og skoraði 21 mark fyrir félagið.

Björk kom til Vals frá Stjörnunni fyrir tímabilið 2010.

Björk hefur leikið 161 leik í deild og bikar með Val og Stjörnunni og hefur skorað í þeim 89 mörk. Hún á að baki einn leik fyrir A-landslið Íslands.

Hún er 24 ára gömul og hafði verið eftirsótt af nokkrum félögum í Pepsi-deild kvenna eftir að hún tilkynnti að hún væri hætt í Val en valdi að lokum Breðiablik.

Hlynur Svan Eiríksson þjálfar Breiðablik á næstu leiktíð en hann tók við starfinu af Ólafi Brynjólfssynisem stýrði því tímabundið út tímabilið eftir að Jóhannesi Karli Sigursteinssyni hafði verið sagt upp. Björk er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Breiðabliks eftir að Hlynur Svan tók við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.