Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 17:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atli leggur skóna á hilluna - „Sannkölluð goðsögn"
Myndir frá ferli Atla.
Myndir frá ferli Atla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Atli Arnarson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 16 tímabil í meistaraflokki. Hann er fæddur árið 1993 og lék á miðjunni. Hann lék með uppeldisfélaginu Tindastóli, Leikni, ÍBV og HK á sínum ferli.

Hann varð bikarmeistari með ÍBV sumarið 2017.

„Þá eru skórnir komnir á hilluna eftir 16 tímabil, nýtt krossband og nokkra sjúkraþjálfaratíma. Þakklátur fyrir frábæra tíma með Stólunum, Leikni R., ÍBV og HK með eintómum toppmönnum. Algjör forréttindi!" skrifar Atli í færslu á Instagram.

Í færslu á samfélagsmiðlum HK er farið fögrum orðum um kappann.

Tilkynning HK
Atli kom til HK árið 2019 og lék með félaginu í sjö tímabil.

Hann er sannkölluð goðsögn hjá HK og var lykilmaður hjá liðinu frá fyrsta degi og spilaði 148 leiki með HK, þar af 93 í efstu deild og skoraði í þeim 29 mörk.

„Það hefur verið heiður að spila fyrir HK og kynnast öllu því góða fólki sem þar er. Stemningin í klefanum hefur verið einstök allan minn tíma þar, enda stór hópur af fagmönnum sem farið hefur þar í gegn. Hlakka til að fylgjast með liðinu ná sínum markmiðum í sumar úr stúkunni. Takk fyrir mig!" segir Atli.

HK mun heiðra Atla fyrir framlag sitt til HK, í Kórnum og verður það auglýst nánar síðar.

Takk fyrir allt Atli, gangi þér vel í næstu verkefnum og við sjáumst í Hlýjunni í sumar.


Slapp
banner