Fotbolti.net
08.05.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Þórir Guðnason í Hött á láni (Staðfest)

Þórir Guðnason í Hött á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Höttur úr annarri deild hefur fengið markvörðinn Þóri Guðnason á láni frá Haukum.
Þórir fékk félagaskipti í Hött í gær og hann gæti því leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Leikni Fáskrúðsfirði í VISA-bikarnum í dag.

Þórir er fæddur árið 1989 en hann á einn mótsleik að baki með Haukum, í fyrstu deildinni árið 2008.

Oliver Bjarki Ingvarsson hefur varið mark Hattar undanfarin ár en hann hefur lagt skóna á hilluna vegna meiðsla.

Auk Þóris þá fékk Höttur markvörðinn Sveinbjörn Inga Grímsson frá Völsungi í vetur. Bjarni Viðar Hólmarsson er einnig hjá Hetti eins og í fyrra og því hefur liðið þrjá unga markverði innan sinna raða.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.