08.05.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Enok, Ómar og Sindri í ÍH (Staðfest)

Sindri (til hægri) í leik með ÍH í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍH hefur fengið Enok Eiðsson og Sindra Örn Steinarsson á láni frá Haukum auk þess sem reynsluboltinn Ómar Bendtsen er kominn aftur til félagsins.
Enok og Sindri eru báðir fæddir 1990 og þeir komu báðir við sögu hjá Haukum í fyrstu deildinni í fyrra.
Enok skoraði þá eitt mark í sjö leikjum með en Sindri kom við sögu í tíu leikjum.
Sindri hefur áður leikið með ÍH en hann var á láni hjá liðinu fyrri hluta tímabils í fyrra sem og síðari hlutann sumarið 2008.
Ómar Bendtsen verður 38 ára á þessi ári en hann skoraði fimm mörk í tíu leikjum með ÍH sumarið 2008.
Í fyrra var hann spilandi aðstoðarþjálfari hjá Reyni Sandgerði þar sem hann kom við sögu í fjórum leikjum.
Allir leikmennirnir fengu félagaskipti í gær og þeir geta því leikið með liðinu gegn Reyni Sandgerði í VISA-bikarnum í dag.