Fotbolti.net
08.06.10 - 17:40
Magnús Már Einarsson

Philippe Senderos til Fulham (Staðfest)

Philippe Senderos til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fengið varnarmanninn Philippe Senderos til liðs við sig frá Arsenal.
Senderos, sem er 25 ára hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fulham.

Þessi svissneski landsliðsmaður kom til Arsenal frá Servette árið 2003 og lék alls 54 leiki í byrjunarliði hjá enska félaginu.

Tímabilið 2008/2009 var hann í láni hjá AC Milan og síðari hluta síðasta tímabils var hann í láni hjá Everton.

,,Ég hlakka til að hitta nýju liðsfélaga mína skömmu eftir HM og auðvitað Roy Hodgson, stjóra sem ég ber mjög mikla virðingu fyrir,\" sagði Senderos sem verður í eldlínunni með Svisslendingum á HM.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.