08.06.10 - 21:38
Arnór Gunnar Gunnarsson
Adriano til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roma hefur staðfest að félagið er búið að semja við brasilíska framherjann Adriano en félagið hefur verið á höttunum eftir þessum 28 ára gamla leikmanni Flamengo undanfarnar vikur.
Í opinberri tilkynningu frá félaginu segir: ,,A.S. Roma og Adriano Leite Ribeiro vilja opinbera samning milli aðilanna sem tekur gildi 1. júlí 2010 og rennur út 30. júní 2013.\"
,,Leikmaðurinn mun fá fimm milljónir evra fyrir hverja leiktíð í samningnum auk bónusgreiðslna fyrir að ná að skora ákveðinn fjölda marka.\"
,,Leikmaðurinn verður kynntur blaðamönnum og almenningi á morgun, 9. júní 2010, klukkan 17:00 á Stadio Flaminio í Róm.\"
Adriano kemur til Roma endurgjaldslaust þegar samningur hans við brasilíska félagið rennur út um mánaðamótin. Hann kom til Flamengo í fyrra eftir að hafa átt stormasama leiktíð með Inter Milan, þar sem hann hafði spilað með hléum frá árinu 2001.

Heimild: Goal