Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 10:31
Kári Snorrason
Furða sig á innkomu Jóns Daða - Fékk fyrirliðabandið og neitaði að mæta í viðtal
Jón Daði fékk fyrirliðabandið eftir að hann kom inn á.
Jón Daði fékk fyrirliðabandið eftir að hann kom inn á.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gekk til liðs við uppeldisfélagið í fyrra.
Gekk til liðs við uppeldisfélagið í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði Böðvarsson kom inn á í 2-3 sigri Selfyssinga á Fjölni í Egilshöll um helgina.

Jón hafði ekkert komið við sögu með Selfossi í tveimur leikjum þar áður, en hlaðvarpið Harkið greindi frá því að hann hafi verið sendur heim af æfingu.

Þá sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari liðsins, Jón hafa verið utan hóps vegna persónulegra ástæðna.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  3 Selfoss

Rætt var um innkomu Jóns Daða í Harkinu hér á Fótbolta.net: „Jón Daði kemur inn á. Það kom mjög á óvart að hann hafi verið mættur á bekkinn. Greinilega búið að slíðra sverðin og fær fyrirliðabandið í þokkabót.“

„Miðað við hvað maður hefur heyrt um hvað hafi gerst þá finnst mér furðulegt að hann sé kominn aftur og hafi fengið bandið. Síðan reyndi Fótbolti.net að fá hann í viðtal eftir leik en hann sagði bara nei, sem er líka skrítið, miðað við hversu vel Selfyssingar hafa höndlað öll sín mál hingað til.“

„Maður hefði búist við því að hann hefði mætt, sagt þetta mál vera að baki og áfram gakk,“
kom fram í Harkinu en hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Harkið - Jón Daði mættur aftur!
Slapp
banner
banner
banner