Fotbolti.net
08.07.10 - 16:14
Magnús Már Einarsson

Lorik Cana til Galatasaray (Staðfest)

Lorik Cana til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lorik Cana, fyrirliði Sunderland, hefur gengið til liðs við Galatasaray í Tyrklandi.
Þessi grjótharði Albani kom til Sunderland frá Marseille á fimm milljónir punda fyrir ári síðan.

Hann er nú farinn til Tyrklands en Galatasaray borgaði fimm milljónir punda fyrir leikmanninn.

Á síðustu leiktíð lék Cana 31 leik með Sunderland en hann vann hug og hjörtu stuðningsmanna liðsins með miklum baráttuvilja.

,,Leikstíll Lorik og hugarfar gerðu hann að fyrirliða á síðasta tímabili,\" sagði Steve Bruce stjóri Sunderland.

,,Þegar hann kom aftur til æfinga á undirbúningstímabilinu var augljóst á að hann vildi leika með öðru félagi í Evrópu.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.