Fotbolti.net
08.08.09 - 08:30
Magnús Már Einarsson

Habib Beye til Aston Villa (Staðfest)

Beye tæklar Robinho.

Beye tæklar Robinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt varnarmanninn Habib Beye frá Newcastle fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi senegalski varnarmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning við Villa.

Í fyrradag var greint frá því að Beye væri kominn með leyfi til að ræða við Hull City en hann ákvað að lokum að ganga í raðir Aston Villa.

,,Ég tel að það að ganga í raðir Aston Villa sé frábært skref fyrir mig. Ég skrifaði undir nú síðdegis og ég er mjög ánægður. Ég vonast núna eftir að njóta velgengni með Villa,\" sagði Beye í gær.

Beye, sem er 31 árs, er þriðji leikmaðurinn sem Aston Villa fær í sumar á eftir Stewart Downing og Fabian Delph.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.