08.09.11 - 18:17
Magnús Már Einarsson
Mikael Forssell til Leeds (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Leeds United hefur gert samning við finnska framherjann Mikael Forssell en samningurinn gildir út þetta tímabil.
Hinn þrítugi Forssell hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Hannover í Þýskalandi í sumar.
Hann hefur æft með Leeds undanfarnar vikur og á endanum ákvað félagið að bjóða honum samning.
Forssell þekkir vel til í enska boltanum því hann lék á sínum tíma bæði með Chelsea og Birmingham.
Hann hefur æft með Leeds undanfarnar vikur og á endanum ákvað félagið að bjóða honum samning.
Forssell þekkir vel til í enska boltanum því hann lék á sínum tíma bæði með Chelsea og Birmingham.
Heimild: Sky
