08.10.10 - 09:00
Fótbolti.net
Slúðurpakki úr íslenska boltanum - Númer tvö

Björgólfur Takefusa er líklega á förum frá KR.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Ásgeir Þór Ingólfsson er orðaður við ÍBV og Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Gunnlaugur er orðaður bæði við Selfoss og Reyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð gæti tekið við Hvöt.

Mynd: Guðmundur Karl

Björgólfur Takefusa er líklega á förum frá KR.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Þá er komið að öðrum slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
Sjá einnig:
Íslenskur slúðurpakki (28.september)
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
Sjá einnig:
Íslenskur slúðurpakki (28.september)
Breiðablik: Ellert Hreinsson, framherji Stjörnunnar, hefur verið orðaður við sitt gamla félag Breiðablik og liðsfélagi hans Jóhann Laxdal hefur einnig verið orðaður við Blika. Gunnar Örn Jónsson gæti einnig komið aftur til Breiðabliks frá KR.
FH: Líklegt er að Hjörtur Logi Valgarðsson sé á leið í atvinnumennskuna. Gunnar Kristjánsson mun líklega semja við FH og Jóhann Laxdal hefur einnig verið orðaður við Fimleikafélagið.
ÍBV: Miðjumennirnir ungu Guðmundur Þórarinsson hjá Selfossi og Ragnar Leósson hjá ÍA eru á óskalista Eyjamanna sem hafa líka áhuga Ásgeiri Ingólfssyni leikmann Hauka.
KR: Gunnar Örn Jónsson er að hugsa sér til hreyfings og þá er líklegt að Björgólfur Takefusa og Viktor Bjarki Arnarsson séu á förum. Hólmar Örn Rúnarsson miðjumaður Keflavíkur hefur verið orðaður við KR sem og Jóhann Laxdal hjá Stjörnunni.
Fram: Framarar hafa bæst í hópinn yfir þau félög sem hafa áhuga á Guðmundi Þórarinssyni miðjumanni Selfyssinga. Breiðablik og FH hafa einnig sýnt Guðmundi áhuga eins og kom fram í síðasta slúðurpakka. Framarar hafa einnig áhuga á að fá Viktor Unnar Illugason en hann er líkt og Guðmundur á förum frá Selfossi. Gunnar Þór Gunnarsson, leikmaður Norrköping, gæti einnig gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Fram.
Keflavík: Ásgeir Þór Ingólfsson leikmaður Hauka er sterklega orðaður við Keflavík. Björgólfur Takefusa framherji KR hefur líka verið orðaður við Keflavík en óvíst er hvort Alen Sutej og Paul McShane verða áfram hjá félaginu.
Valur: Valsmenn eru einnig í leit að vinstri bakverði í stað Martin Pedersen og Gunnar Þór Gunnarsson hefur verið nefndur til sögunnar þar. Þrátt fyrir að Kjartan Sturluson sé farinn þá eru Valsmenn ekki í markmannsleit þar sem Haraldur Björnsson mun fá tækifærið en hann var í láni hjá Þrótti á síðasta tímabili.
Stjarnan: Hörður Árnason úr HK og Guðmundur Steinn Hafsteinsson úr Val hafa verið orðaðir við Garðbæinga. Markverðirnir Árni Gautur Arason og Ingvar Jónsson eru einnig á óskalistanum hjá Stjörnunni. Halldór Orri Björnsson gæti einnig reynt fyrir sér erlendis.
Fylkir: Stefán Þór Eyjólfsson, miðjumaður úr Hetti, er á óskalista Fylkis en hann skoraði grimmt í annarri deildinni í sumar. Björn Orri Hermannsson í Fram og Agnar Bragi Magnússon í Selfossi gætu einnig komið í Árbæinn á nýjan leik. Arnar Már Björvinsson leikmaður Stjörnunnar er líka orðaður við Fylkismenn.
Grindavík: Eyþór Atli Einarsson gæti gengið aftur til liðs við Grindavík en hann hefur leikið með Fjölni undanfarin ár. Jamie Mcunnie, sem lék með Haukum síðari hluta sumars, er einnig undir smásjánni hjá Grindavík.
Víkingur R.: Viktor Bjarki Arnarsson gæti gengið til liðs við sitt gamla félag frá KR og Björgólfur Takefusa gæti einnig verið á leið í Fossvoginn en Víkingur hefur mikinn áhuga á honum. Baldur Ingimar Aðalsteinsson leikmaður Vals er einnig á óskalistanum í Víkinni sem og liðsfélagi hans Atli Sveinn Þórarinsson. Pétur Georg Markan úr Fjölni og Kristján Páll Jónsson úr Leikni eru einnig undir smásjánni hjá Víkingi.
Þór: Jóhann Þórhallsson og Andri Hjörvar Albertsson eru áfram sterklega orðaðir við Þór auk þess sem Andri Fannar Stefánsson miðjumaður KA er orðaður við félagið. Vinstri bakvörðurinn reyndi Aleksandar Linta gæti aftur á móti verið á förum.
Haukar: Daníel Einarsson er að íhuga stöðu sína. Ómar Karl Sigurðsson er á leið til Hauka frá Keflavík og Jamie Mcunnie og Sam Mantom gætu mögulega komið aftur til félagsins næsta sumar.
Selfoss: Orðrómur er um að Logi Ólafsson hafi fundað með Selfyssingum sem eru í leit að þjálfara. Gunnlaugur Jónsson hefur einnig óvænt verið orðaður við endurkomu í þjálfarstólinn á Selfossi auk þess sem Gunnar Guðmundsson þjálfari U17 ára landsliðsins hefur verið orðaður við félagið. Zoran Miljkovic, fyrrum þjálfari Selfyssinga, var einnig á Selfossi í vikunni en hann flýgur heim til Serbíu í dag.
Fjölnir: Ágúst Þór Ágústsson, miðjumaður Fjölnis, gæti verið á förum.
Þróttur R.: Stefán Þór Eyjólfsson leikmaður Hattar er á óskalista Þróttara sem sýndu honum einnig áhuga síðastliðið vor.
HK: Jónas Grani Garðarsson, spilandi aðstoðarþjálfari HK, gæti lagt skóna á hilluna.
KA: KA leitar nú að þjálfara eftir að Guðjón Þórðarson ákvað að taka frekar við BÍ/Bolungarvík. Páll Guðlaugsson, Njáll Eiðsson og Dragan Stojanovic hafa verið orðaðir við stöðuna. Þá hefur Ungverski markvörðurinn Sandor Matus hug á að fara eftir að hafa leikið með KA frá því árið 2004.
BÍ/Bolungarvík: Jóhannes Harðarson er á leið heim úr atvinnumennsku í Noregi og hann mun spila með BÍ/Bolungarvík auk þess að vera aðstoðarþjálfari hjá Guðjóni Þórðarsyni. BÍ/Bolungarvík ætlar einnig að fá tvo Englendinga til félagsins og þá hefur Jamie Mcunnie varnarmaður Hauka verður orðaður við Vestfirðinga.
Völsungur: Baldur Ingimar Aðalsteinsson hefur verið orðaður við sitt uppeldisfélag Völsung.
Hvöt: Alfreð Elías Jóhannsson, fráfarandi þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Hvöt.
Höttur: Eysteinn Húni Hauksson nýráðinn þjálfari Hattar mun líklega halda flestum leikmönnum sínum. Högni Helgason gæti mögulega komið aftur á láni frá Breiðablik líkt og í sumar.
Reynir: Óvíst er hver þjálfar Reynismenn næsta sumar. Gunnlaugur Jónsson hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna.
KB: Óli Halldór Sigurjónsson gæti stigið frá borði sem þjálfari KB vegna tímaskorts. Hann stýrði liðinu með Þórði Einarssyni í sumar en liðið var hársbreidd frá því að komast upp.
Augnablik: Kristófer Skúli Sigurgeirsson fyrrum þjálfari Reynis Sandgerði er orðaður við þjálfarastöðu Augnabliks.
Einherji: Davíð Örvar Ólafsson, sonur Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara, er að hætta sem þjálfari Einherja.

Ásgeir Þór Ingólfsson er orðaður við ÍBV og Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Gunnlaugur er orðaður bæði við Selfoss og Reyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð gæti tekið við Hvöt.

Mynd: Guðmundur Karl
