Fotbolti.net
08.10.10 - 17:26
Magnús Már Einarsson

Björn Kristinn tekur við kvennaliði Selfoss (Staðfest)

Björn Kristinn tekur við kvennaliði Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Björn Kristinn Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss en þetta kemur fram á sunnlenska.is. Björn mun skrifa undir samning við Selfoss í hádeginu á morgun.
Helena Ólafsdóttir hætti með Selfoss á dögunum og nú er ljóst að Björn Kristinn mun þjálfa liðið í fyrstu deildinni næsta sumar.

Björn Kristinn hefur þjálfað kvennalið Fylkis undanfarin fjögur ár og hætti með liðið í haust þegar samningur hans við félagið rann út.

Áður en Björn Kristinn tók við Fylki hafði hann verið aðstoðarþjálfari hjá Breiðablik í tvö ár. Þar áður hafði hann starfað á Akureyri þar sem hann þjálfaði flesta flokka KA og var yfirþjálfari yngri flokka.

Selfoss rétt missti af sæti í Pepsi-deild kvenna en liðið tapaði gegn Þrótti í umspili um sæti í efstu deild.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.