08.11.11 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Ungur bandarískur miðjumaður til Liverpool (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Liverpool hefur samið við bandaríska miðjumanninn unga Marc Pelosi en hann kemur frá De Anza Force í Californiu.
Þessi 17 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir samning um að koma inn í akademíu félagsins.
Þessi 17 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir samning um að koma inn í akademíu félagsins.
Pelosi hefur skorað átta mörk í 28 leikjum með U17 ára landsliði Bandaríkjanna en hann var fyrirliði liðsins á HM í Mexíkó í sumar.
,,Við viljum finna hæfileikaríkustu leikmenn í heiminum og ég er ánægður með að hafa fengið Marc til félagsins,\" sagði Frank McParland yfirmaður hjá akademíu Liverpool.
,,Við viljum finna hæfileikaríkustu leikmenn í heiminum og ég er ánægður með að hafa fengið Marc til félagsins,\" sagði Frank McParland yfirmaður hjá akademíu Liverpool.
Heimild: Sporting Life
