Fotbolti.net
08.11.11 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Karl Brynjar í Þrótt (Staðfest)

Karl Brynjar í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur fengið varnarmanninn Karl Brynjar Björnsson til liðs við sig frá ÍR en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Þessi 26 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá FH en hann hefur leikið með ÍR frá því árið 2005 og skorað níu mörk í 109 leikjum.

,,Mér fannst vera kominn tími á breytingar og að prófa eitthvað nýtt. Ég hafði samband við Þrótt og þeim langaði að klára þetta strax,\" sagði Karl við Fótbolta.net í dag en hann þekkir leikmenn Þróttar vel.

,,Guffi (Guðfinnur Þórir Ómarsson) er minn besta félagi og síðan þekki ég hina strákana. Maður hefur æft með flestum af þessum strákum áður og ég held að ég passi vel inn í hópinn. Ég er gríðarlega sáttur.\"

Þróttarar hafa verið í leit að varnarmanni í haust þar sem Jens Elvar Sævarsson er farinn í Reyni Sandgerði og Dusan Ivkovic er einnig mögulega á förum.

Þá er óvíst hvort Helgi Pétur Magnússon og Ingvar Þór Ólason leiki með liðinu næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.