09.06.10 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pajtim Kasami til Palermo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Palermo hefur staðfest komu Pajtim Kasami til félagsins en leikmaðurinn var í U-17 ára landsliði Sviss sem vann HM.
,,U.S. Palermo tilkynnir að félagið hefur lokið samningaviðræðum við miðjumanninn Pajtim Kasami, fæddur í Struga (Makedóníu) 2. júní 1992, frá félaginu AC Bellinzona,\" sagði í yfirlýsingu Palermo.
,,Svissneski ríkisborgarinn sem var U-17 ára heimsmeistari 2009, er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Palermo.\"
Ekki er greint frá kaupverðinu en Kasami hefur farið á reynslu til unglingaliða Lazio, Grasshoppers og Liverpool.

Heimild: Goal