09.06.10 - 12:05
Magnús Már Einarsson
Paul Dickov tekur við Oldham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gamla kempan Paul Dickov hefur tekið við sem spilandi knattspyrnustjóri hjá Oldham Athletic.
Þessi 37 ára gamli leikmaður lék á árum áður með liðum eins og Manchester City og Leeds en hann var síðast á mála hjá Leeds.
Dave Penney var látinn fara frá Oldham í síðasta mánuði og Dickov hafði síðan betur í baráttu við níu aðra sem komu til greina sem knattspyrnustjóri.
Oldham leikur í þriðju efstu deild á Englandi en liðið rétt náði að bjarga sér frá falli á síðasta tímabili.

Heimild: BBC