09.06.10 - 11:34
Magnús Már Einarsson
Helgi Kolviðsson ráðinn þjálfari Pfullendorf (Staðfest)

Helgi Kolviðsson (lengst til vinstri).

Mynd: Pfullendorf

Helgi Kolviðsson (lengst til vinstri).

Mynd: Pfullendorf
Helgi Kolviðsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá þýska félaginu Pfullendorf.
Helgi hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarþjálfari hjá Pfullendorf og nú mun hann taka við sem þjálfari af Walter Schneck.
Á árum áður lék Helgi einnig lengi með Pfullendorf sem og með öðrum félögum í atvinnumennskunni.
Pfullendorf leikur í fjórðu efstu deild í Þýskalandi en liðið endaði í þrettánda sæti á síðasta tímabili.
Á síðustu leiktíð var Halldór Orri Björnsson leikmaður Stjörnunnar í láni hjá Pfullendorf auk þess sem Hörður Árnason úr HK og Ingvar Jónsson úr Njarðvík fóru til félagsins á reynslu.

Heimild: Heimasíða Pfullendorf