09.06.10 - 15:04
Hörður Snævar Jónsson
Bjarni Viðarsson til Mechelen (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þór Viðarsson hefur gert þriggja ára samning við belgíska liðið, KV Mechelen. Þetta kemur fram á Mbl.is
Bjarni lék með KSV Roeselare á síðustu leiktíð en liðið féll úr belgísku úrvalsdeildinni.
Hann mun því halda áfram að leika í úrvalsdeildinni þar í landi.
„Ég er bara mjög ánægður með samninginn. Það er vel staðið hjá öllu liðinu, aðstaðan er góð hjá því og ég hlakka bara til að takast á við þetta nýja verkefni. Ég finn fyrir því að það er mikill hugur í forráðamönnum félagsins. Það er búið að styrkja liðið töluvert ég er fimmti leikmaðurinn sem það kaupir í sumar,\" sagði Bjarni við Mbl.is.
Annar Íslendingur æfði með Mechelen síðasta vetur en það var Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður ÍBV en honum var ekki boðinn samningur.

Heimild: Vísir