Manchester United er að skoða markvarðamálin hjá sér og er von á breytingum þar í sumar. Senne Lammens (2002) er aðalmarkvörður liðsins og Tom Heaton er sá þriðji. Stefnan er að Altay Bayindir fari frá félaginu í sumar og þá er líklegt að reynt verði að selja Andre Onana sem var á láni í Tyrklandi á liðnu tímabili.
United vill hafa reynslumikinn markvörð sem stuðning við Lammens og eru þeir Karl Darlow hjá Leeds og Sam Johstone hjá Wolves orðaðir við félagið.
United vill hafa reynslumikinn markvörð sem stuðning við Lammens og eru þeir Karl Darlow hjá Leeds og Sam Johstone hjá Wolves orðaðir við félagið.
Trabzonspor, þar sem Onana var á láni, er sagt vilja fá Onana aftur frá United og mögulega aftur á láni.
Darlow (1990) vann sér inn sæti í liði Leeds seinni hluta tímabilsins þegar hann sló Lucas Perri úr liðinu. Sam Johnstone (1993) er líkt og Heaton uppalinn hjá Man Utd. Frá árinu 2018 hefur hann verið hjá WBA, Crystal Palace og nú síðast Wolves.
Darlow er með lausan samning hjá Leeds en Johnstone er skráður með samning við Wolves, sem féll úr úrvalsdeildinni, til 2028.


