Portúgalska stórveldið Benfica er búið að tilkynna Marco Silva sem nýjan aðalþjálfara en hann kemur til félagsins úr röðum Fulham.
Marco Silva tekur við af José Mourinho sem fór í gegnum portúgalska deildartímabilið án þess að tapa einum einasta leik, en Benfica endaði þrátt fyrir það í þriðja sæti deildarinnar.
Silva er gríðarlega eftirsóttur eftir fimm frábær ár við stjórnvölinn hjá Fulham. Hann er portúgalskur og hefur áður stýrt Estoril og Sporting CP í heimalandinu.
Silva er 48 ára gamall og stýrði Hull City, Watford og Everton áður en hann tók við hjá Fulham sumarið 2021.
Benfica leikur í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
08.06.2026 07:00
Eltir Marco Silva til Benfica
Acordo com Marco Silva
— SL Benfica (@SLBenfica) June 9, 2026
A Sport Lisboa e Benfica, SAD informa, em comunicado à CMVM, que chegou a acordo com Marco Silva para a celebração de um contrato de trabalho válido por duas épocas, extensível até 2028/29. pic.twitter.com/yCEapjFFEf





