09.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Nadir Belhadj til Katar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Al Sadd frá Katar hefur keypt vinstri bakvörðinn Nadir Belhadj frá Portsmouth.
Þessi 28 ára gamli leikmaður spilaði með Alsír á HM á dögunum en hann kom til Portsmouth frá Lens í Frakklandi árið 2008.
Nokkur félög í Evrópu höfðu áhuga á Belhadj en hann ákvað að ganga í raðir Al Sadd sem hefur ellefu sinnum orðið meistari í Katar.
,,Við höfum lengi ætlað að kaupa hann og við náðum samningi við Portsmouth,\" sagði Jassim Al Rumaihi framkvæmdastjóri Al Sadd.
,,Belhadj fékk mörg tilboð frá evrópskum félögum en áhugi hans á að spila með okkur hjálpaði okkur að ná samningi.\"

Heimild: BBC