09.07.10 - 19:27
Hannes Daði Haraldsson
Leeds kaupir Lloyd Sam (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Simon Grayson, knattspyrnustjóri Leeds United, staðfesti í dag að liðið hefur samið við enska miðjumanninn Lloyd Sam.
Sam er tuttugu og fimm ára og spilaði með Charlton á síðasta tímabili. Hann hefur leikið 134 leiki fyrir Charlton en samningur hans rann út í sumar og þurfa Leeds því ekki að greiða fyrir leikmanninn.
,,Lloyd er góð viðbót við okkar hóp. Hann hefur mikla reynslu og hefur spilað áður í Championship deildinni.\" sagði Simon Grayson um þennan nýjasta liðsmann Leeds.
Lloyd Sam er sjötti leikmaðurinn sem gengur í raðir Leeds í sumar en þeir ætla sér stóra hluti á sínu fyrsta ári í Championship deildinni sem er sú næst efsta á Englandi.
Þess má til gamans geta að Lloyd Sam er bróðir Andrew Sam sé lék með ÍBV fyrir nokkrum árum.

Heimild: Heimasíða Leeds United