09.07.10 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Andre Hansen til Odd Grenland (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Norski markvörðurinn Andre Hansen, sem var í láni hjá KR í fyrra, hefur samið við Odd Grenland.
Þessi tvítugi leikmaður mun ganga til liðs við Odd Grenland þegar samningur hans við Lilleström rennur út um næstu áramót.
Hansen lék með KR síðari hlutann á síðasta tímabili og stóð sig mjög vel með liðinu.
Hjá Odd Grenland mun hann berjast við Árna Gaut Arason um markvarðarstöðuna. Árni hefur leikið hátt í 50 leiki með Odd Grenland síðan hann kom til félagsins árið 2008.

Heimild: Heimasíða Odd Grenland