09.10.10 - 13:03
Magnús Már Einarsson
Pétur Georg Markan í Víking R. (Staðfest)

Pétur ásamt Leifi Garðarssyni þjálfara Víkings eftir undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pétur Georg Markan er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Víking R. en hann kemur til félagsins frá Fjölni.
Pétur er 29 ára gamall og getur leikið bæði sem kantmaður og sóknarmaður. Hann lék á sínum yngri árum með Víkingi.
Hann skoraði tíu mörk í 21 leik fyrir Fjölni í sumar en hann gekk aftur í raðir félagsins eftir að hafa verið eitt ár hjá Val þar sem hann lék 15 leiki og skoraði þrjú mörk.
Pétur verður þar með fyrsti leikmaðurinn sem nýliðar Víkings fá en mikill orðrómur er um að liðið ætli að stykrja sig verulega fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Viðtal við Pétur mun birtast hér á Fótbolta.net síðar í dag.