09.10.11 - 16:00
Magnús Már Einarsson
Twitter helgarinnar - Helvítis landsleikjahelgar

Johnny Heitinga leikmaður Everton skellti sér í hjólreiðatúr um helgina.

Mynd: Twitter


Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Johnny Heitinga leikmaður Everton skellti sér í hjólreiðatúr um helgina.

Mynd: Twitter
Íslenska landsliðið skipar stóran sess í Twitter helgarinnar að þessu sinni.
Guðmundur Steinarsson leikmaður Keflavíkur:
Neyðist til að setja í þvottavél og ganga frá þvotti í dag. Helvítis landsleikjahelgar. #takiðafykkurskóna #stuðmenn
Egill Gillz Einarsson fótboltaáhugamaður:
Ef að smiðurinn hefði ekki drullað þegar hann valdi markmann í byrjunarliðið þá hefðum við náð í punkt. (staðfest)
Hjörvar Hafliðason sparkspekingur:
Erum að fara í epískan skítariðil í undankeppni HM 14\'ekkert af þeim liðum verða núna á EM.Myndi treysta mér til að koma liðinu til Brasilíu
Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net:
Tel áhyggjur yfir að Lagerback sé of dýr algjörlega óþarfar, launatölurnar sem eru nefndar stórýktar. Íslenskur fótbolti fer ekki á hausinn
Guðmundur Benediktsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport:
Fylgdi Óla J í 3 útileiki,Hol 2-0,Dan 1-0 & Por 5-3, allt töp en kannski bestu leikir liðsins undir hans stjórn. Bara pæling sko.
Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri á Sammarinn.com:
Manchester City á höttunum eftir markamaskínunni Hallgrími Jónasarsyni. Orðið á götunni. Zlatan hvað?
Hörður Magnússon íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport:
Portúgal átti aldrei skilid ad vera 3 yfir í hálfleik.Stoltur af lidinu og lofar gódu fyrir framtídina og Lars Lagerback. #meiratóbakÓlijó
Henrik Bødker markmannsþjálfari hjá Stjörnunni:
Verð aldrei mikill aðdándi af \"Landsliðs-helgar\". Ein helgi í frí og þú ert farinn að skoða reglulega stöðuna í Bury-Exeter
Ásmundur Haraldsson knattspyrnuþjálfari:
Sammála Big W að mörgu leyti. Hins vegar er mér slétt sama hver tekur við, svo lengi sem allt landsliðsbatteríið sé tekið í gegn. U16 uppí A
Rio Ferdinand leikmaður Manchester United:
Welbeck hefur staðið sig mjög vel síðan hann kom inn á. Þessi strákur á eftir að verða stjarna. Hann er með þetta allt saman.
Four Four Tom fótboltaáhugamaður:
Munð þið eftir fræga vöggufagninu hjá Bebeto á HM 94? Það var fyrir nýfæddan son hans sem er núna orðinn atvinnumaður. Líður ykkur eins og þið séu orðin gömul?
Anton Ellertsson fótboltaáhugamaður:
Húsvíkingurinn var ekki alveg tilbúinn í fyrrihálfleik en Keflvíkingurinn reddaði þessu með 2 í seinni #Hallgrímur #aðeinsofgóður #legend


Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
