09.11.11 - 07:17
Hafliði Breiðfjörð
Sigrún Inga Ólafsdóttir í KR (Staðfest)

Sigrún Inga í leik með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigrún Inga í leik með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigrún Inga Ólafsdóttir er gengin til liðs við KR en þetta var staðfest á vef félagsins í gær.
Sigrún Inga hafði leikið með KR á láni frá Breiðablik á síðustu leiktíð en er nú gengin alveg í raðir félagsins.
Hún spilaði 19 leiki fyrir KR í Pepsi-deildinni og Valitor bikarnum á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk.
Hún er uppalin hjá Breiðablik og frá árinu 2007 lék hún með liðinu 14 leiki í deild og bikar. Hún hefur leikið 14 leiki með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.
Af KR er það annars að frétta að liðið leikur tvo æfingaleiki í nóvember. Fyrst gegn ÍBV á laugardaginn klukkan 12:00 á KR-velli og svo gegn ÍA í Akraneshöllinni föstudaginn 25. nóvember. Þetta verða fyrstu leikir liðsins undir stjórn Jóns Þórs Brandssonar sem tók við í haust.

Heimild: Vefur KR