Fotbolti.net
09.11.11 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Hönefoss búið að kaupa Arnór Svein (Staðfest)

Hönefoss búið að kaupa Arnór Svein (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Norska félagið Hönefoss hefur keypt varnarmanninn Arnór Svein Aðalsteinsson frá Breiðabliki.

Arnór Sveinn fór fyrst til Hönefoss á láni í júlí og í gær skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið.
,,Ég er virkilega sáttur, þetta er frábært,\" sagði Arnór Sveinn við Fótbolta.net í dag.

Hönefoss sigraði norsku fyrstu deildinni á nýliðnu tímabili og mun því leika á meðal þeirra bestu á næsta ári.

,,Það verður mjög spennandi. Það verða einhverjar breytingar á hópnum en ég held að það verði reynt að halda þeim kjarna sem var.\"

Auk Arnórs leikur varnarmaðurinn Kristján Örn Sigurðsson með liði Hönefoss.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.