09.11.11 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Gunnar Kristjánsson í KV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Gunnar Kristjánsson hefur samið við KV um að leika með liðinu í annarri deildinni næsta sumar.
Í gær losnaði Gunnar undan samningi hjá FH og hann hefur ákveðið að semja við KV en Páll Kristjánsson bróðir hans er þjálfari liðsins.
Gunnar, sem er vinstri kantmaður og framherji, spilaði níu leiki með FH-ingum í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi 24 ára gamli leikmaður meiddist í leik gegn Stjörnunni snemma sumars og missti í kjölfarið af stórum hluta tímabilsins.
Gunnar er uppalinn hjá KR en hann hefur samtals skorað sjö mörk í 114 deildar og bikarleikjum hér á landi.
Gunnar verður formlega kynntur til sögunnar hjá KV á fréttamannafundi hjá félaginu á morgun.
KV sigraði þriðju deidina í sumar og mun leika í annarri deildinni næsta sumar líkt og liðið gerði í fyrra.