09.11.11 - 16:37
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Örn Jónsson í Stjörnuna (Staðfest)

Gunnar Örn ásamt Bjarna Jóhannssyni þjálfara Stjörnunnar í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gunnar Örn Jónsson hefur skipt úr Íslandsmeisturum KR yfir í Stjörnuna en hann skrifaði undir samning við Garðabæjarliðið á fréttamannafundi rétt í þessu. Samningurinn er til tveggja ára.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur leikið með KR undanfarin fjögur tímabil.
Gunnar Örn skoraði samtals tvö mörk í tuttugu leikjum þegar KR varð Íslands- og bikarmeistari í sumar en alls skoraði hann 14 mörk í 89 leikjum á ferli sínum með KR.
Stjarnan hafnaði í fjórða sæti á liðnu sumri og setur stefnuna enn hærra á því næsta.
3. flokkur karla hjá félaginu varð Íslandsmeistari í haust og var skrifað undir samninga við fimm leikmenn úr flokknum sem eru að ganga upp í 2. flokk.
Það eru þeir Aron Rúnarsson Heiðdal, Atli Freyr Ottesen Pálsson, Daníel Andri Baldursson, Sveinn Sigurður Jóhannesson og Þorri Geir Rúnarsson. Allir eru þeir fæddir 1995.