Fotbolti.net
09.11.11 - 18:16
Hafliði Breiðfjörð

Valur Fannar Gíslason í Hauka (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Frá undirskriftinni í dag.

Canon

Mynd: Haukar

Haukar sendu frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem það er tilkynnt að Valur Fannar Gíslason sé genginn til liðs við félagið frá Fylki auk þess sem félagið staðfesti það sem áður hafði komið fram á Fótbolta.net að Magnús Páll Gunnarsson sé genginn til liðs við þá frá Víkingum.
Valur Fannar hefur verið einn helsti máttarstólpi Fylgis og fyrirliði liðsins undanfarin ár þar sem hann hefur ýmist leikið sem varnar eða miðjumaður.

,,Ég er mjög spenntur fyrir þessari áskorun og þeim krafti sem ég hef fundið fyrir hjá Haukum. Markmið okkar Hauka eru skýr, við ætlum okkur stóra hluti og að sjálfsögðu er stefnan sett á að fara upp í úrvalsdeild á næsta tímabili,\" sagði Valur Fannar í fréttatilkynningu Hauka.

Þar er einnig rætt við Ólaf Jóhannesson þjálfara liðsins. ,,Það er frábært að fá Val Fannar til liðs við okkur. Hann mun klárlega styrkja lið Hauka verulega og reynsla hans mun vega þungt í markmiðum okkar að fara upp í úrvalsdeild,\" sagði Ólafur í tilkynningunni og hélt áfram um Magnús Pál:

,,Það er mikill fengur að Magnúsi í okkar herbúðum. Hann er góðu framherji með góða skallatækni og bronsskórinn sem hann fékk árið 2007 og 23 mörk í 23 leikjum á síðasta keppnistímabili í Þýskalandi segja sitt um styrkleika hans. \"

Magnús Páll kemur frá Víkingum þar sem hann lék á síðari hluta síðustu leiktíðar eftir að hafa komið til landsins frá\'Þýskalandi, samtals tíu leiki og skoraði eitt mark. Hann sagði:

,,Ég hlakka til að leika með Haukum og vona að ég eigi eftir að leggja mitt af mörkum til þess að félagið komist upp í úrvalsdeild. Ég er ánægður með þann mikla metnað sem ég finn hjá stjórnendum og ég treysti þjálfaranum og aðstoðarmanni hans til að finna réttu leiðirnar til árangurs”.
Magnús Páll.

Magnús Páll.

Canon

Mynd: Haukar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.