09.12.11 - 10:34
Magnús Már Einarsson
Tímabilið búið hjá Nemanja Vidic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest að Nemanja Vidic mun ekki koma meira við sögu á tímabilinu.
Vidic meiddist gegn Basel í fyrrakvöld og nú er ljóst að hann er með slitið krossband.

,,Nemanja er frá út tímabilið. Þetta eru slæmar fréttir. Þetta verður missir,\" sagði Ferguson.
,,Ég bjóst við að þetta væri slæmt þegar ég sá þetta fyrst. Hann hittir sérfræðing á mánudag til að fara yfir hvenær hann á að fara í aðgerð. Það verður ekki strax því við verðum að láta bólguna minnka.\"
Möguleiki er á að Manchester United verði án níu leikmanna gegn Wolves á morgun en auk Vidic eru menn eins og Michael Owen, Anderson, Tom Cleverley, Fabio, Rafael og Javier Hernandez meiddir. Þá er óvíst með þátttöku Ashley Young og Dimitar Berbatov í leiknum á morgun.

Heimild: BBC