Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viktoría Diljá heim í Hauka (Staðfest)
Kvenaboltinn
Viktoría Diljá er komin heim.
Viktoría Diljá er komin heim.
Mynd: Haukar
Viktoría Diljá Halldórsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu tveggja ára.

Viktoría, sem er fædd árið 2004, er uppalin í Haukum og er að koma heim aftur á Ásvelli frá Fylki þar sem hún spilaði meðal annars í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.

Viktoría spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki í gömlu Inkasso deildinni árið 2019 og spilaði eftir það í Lengjudeildinni með Haukum.

Þá á hún að baki níu landsleiki með yngri landsliðum Íslands; þrjá leiki með U19, þrjá með U17 og þrjá með U16.

Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, kveðst afar ánægður að fá Viktoríu í Hauka. „Frábært að fá Viktoríu Diljá til okkar. Hún er hægri bakvörður sem er bæði öflug varnarlega og tæknilega góð. Hún er einnig skemmtilegur karakter og frábær liðsfélagi, sem er einn mikilvægasti eiginleikinn til að hafa í okkar liði. Við bindum miklar vonir við Viktoríu."




Athugasemdir
banner