Fotbolti.net
10.04.26 - 06:37
Ívan Guðjón Baldursson
LiveyÍtalski boltinn

Ætla ekki að virkja ákvæðið fyrir Evan Ferguson

Ætla ekki að virkja ákvæðið fyrir Evan Ferguson
Canon

Mynd: EPA

AS Roma fékk framherjann efnilega Evan Ferguson á láni frá Brighton síðasta haust en hann átti erfitt uppdráttar í ítalska boltanum á tímabili sem einkenndist af erfiðum meiðslum.
Corriere dello Sport greinir frá þessu en það kemur ekki á óvart að Rómverjar hafi hætt við kaupin. 21 árs gamall Ferguson kom að 7 mörkum með beinum hætti í 22 leikjum hjá Roma.

Ferguson meiddist illa á ökkla í janúar og þurfti að fara í aðgerð. Þau meiðsli gætu haldið honum frá út tímabilið.

Roma borgaði 3 milljónir evra til að fá Ferguson á láni og hefði getað fest kaup á honum fyrir um 38 milljónir til viðbótar.

Rómverjar fengu Donyell Malen á láni í janúarglugganum og er búist við að þeir muni festa kaup á honum fyrir sumarið. Honum hefur tekist að festa sig vel í sessi í fremstu víglínu eftir að Ferguson og Artem Dovbyk lentu báðir í slæmum meiðslum.

Snýr aftur til Brighton og fer í aðgerð
TENGT EFNI

Snýr aftur til Brighton og fer í aðgerð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.