10.05.10 - 10:16
Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Darri Einarsson í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík
Grindavík hefur bæst liðsauki fyrir sumarið í meistaraflokki karla því Vilhjálmur Darri Einarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við félagið.
Hann var á mála hjá KR en fékk sig lausan undan samningi.
Vilhjálmur er einn af efnilegri knattspyrnumönnum landsins. Hann er fæddur 1991, miðjumaður og lék 7 landsleiki með U17 þegar Lúka Kostic, núverandi þjálfari Grindavíkur, stýrði landsliðinu. Þá hefur hann spilað tvo U18 leiki.
Vilhjálmur er af miklum íþróttafólki kominn, faðir hans er Einar Vilhjálmsson spjótkastari og afi hans og nafni er hinn eini og sanni silfurmaður sem komst á verðlaunapall í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956.