10.06.10 - 18:19
Magnús Már Einarsson
Roberto Soldado til Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valencia hefur keypt framherjann Roberto Soldado frá Getafe en talið er að kaupverðið hljóði upp á tíu milljónir evra.
Soldado, sem er 25 ára, skrifaði undir fjögurra ára samning við Valencia.
Soldado lék á árum áður með Real Madrid en hann var öflugur með Getafe á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði sextán mörk í La Liga.
Hjá Valencia mun Soldado fá það verkefni að fylla skarð David Villa og Nikola Zigic sem eru báðir farnir frá félaginu.

Heimild: Reuters