Fotbolti.net
10.06.10 - 19:10
Magnús Már Einarsson

Fenerbahche fær Miroslav Stoch frá Chelsea (Staðfest)

Fenerbahche fær Miroslav Stoch frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur keypt miðjumanninn Miroslav Stoch frá Chelsea.
Þessi tvítugi Slóvaki hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Fenerbahce.

Stoch hefur verið á mála hjá Chelsea í fimm ár en hann lék einungis fimm leiki með liðinu á þeim tíma.

Á síðustu leiktíð var hann í láni hjá FC Twente þar sem hann skoraði tólf mörk í 45 leikjum og hjálpaði liðinu að verða hollenskur meistari.

Stoch verður í eldlínunni með Slóvökum á HM í sumar en hann mun væntanlega leika með liðinu gegn Nýja-Sjálandi á þriðjudag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.