Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari íslands, viðurkennir að hann hafi verið smá stressaður fyrir leikinn gegn Argentínu, vegna óveðurs sem kom skyndilega á leikdegi og flóðviðvaranir voru gefnar út í Auburn vegna úrhellisrigningar skömmu fyrir leik. Þær áhyggjur voru þó fljótt kveðnar niður þegar komið var á Jordan-Hare leikvanginn
„Við vorum í smá stresskasti tveimur tímum fyrir leik,“ svaraði Arnar, aðspurður út í veðurofsann.
Þegar komið var á völlinn kveðst hann þó ekki hafa haft neinar áhyggjur af því að leiknum myndi verða aflýst vegna stormsins en háværar þrumur og eldingar fylgdu úrhellinu.
„Nei ekki þegar maður sá hvað þeir [starfsmenn vallarins] voru vanir þessu, þá var það ekki vandamál. Þeir kölluðu til auka mannskap til að klára þessi mál. Um leið og maður mætti á völlinn þá var ljóst að þeir voru ekki að lenda í þessu í fyrsta skipti,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, sem er öllum veðrum vanur.




